Fréttir

KR tryggði stöðu sína á toppnum með sigri á ÍBV

KR-ingar eru komnir með fimm stiga forystu á toppi Pepsi deildarinnar, eftir 2-0 sigur á ÍBV í Eyjum, fyrr í dag.
 
Baldur Sigurðsson og Jónas Guðni Sævarsson skoruðu mörk KR í leiknum í dag, en Gary Martin og Atli Sigurjónsson voru arkitektarnir að báðum mörkum KR liðsins. 
 
Leikmenn KR voru nær því að bæta við mörkum, fremur en Eyjamenn að koma sér inn í leikinn með marki. 
 
KR er nú með fullt hús stiga eftir fjóra leiki og er þetta besta byrjun félagsins í 54 ár. Næsti leikur er eftir slétta viku á móti Blikum á KR vellinum.
 
 

lesa meira

Leikskrá fyrir leik KR og ÍBV

KR-ingar halda til Eyja í dag og leika við heimamenn á Hásteinsvelli klukkan 17.00. 
 
Heimasíða KR, kr.is, hefur undanfarin fimm ár gefið út leikskrá fyrir leiki KR í meistaraflokkum karla og kvenna og er engin breyting á því þetta árið.
 
Það er Óli Brynjar sem hefur veg og vanda af því að hnoða í leikskrána og Grétar Sigfinnur sér svo um uppsetningu á leikskránni. 
 
Vefskráin fyrir leik KR og ÍBV er komin á netið og má finna hér. 
 
 

Lesa frétt

ÍBV - KR í dag

ÍBV og KR eigast við í Vestmannaeyjum í dag í 4. umferð Pepsi-deildarinnar og hefst leikurinn kl. 17. Eitthvað er um að áhangendur KR ætli að bregða sér til Eyja en reglulegar ferðir Herjólfs verða frá Landeyjahöfn. Upplýsingar um ferðir er að finna á herjolfur.is.

Lesa frétt

KR-TV

 
 

Næsti leikur

KR-Breiðablik

Pepsi deildin

KR-völlur

Mánudagurinn 27. maí klukkan 20.00

Pepsi deildin

 
1. KR
4 4 0 0 9-1 9
2. FH 4 3 1 0 7-2 10
3. VALUR 3 2 2 0 7-4 8
4. ÍBV
4 2 1 1 6-4 7
 
 

Finndu okkur á Facebook

Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia 2012