Guðmundur Reynir Gunnarsson hlakkar mikið til laugardagsins
Guðmundur Reynir Gunnrsson andlit Nýherja í nýjum auglýsingum þeirra á Dell fartölvum fyrir skólakrakka er fullur eftirvæntingar fyrir bikarúrslitaleiknum á laugardaginn. KRReykjavik.is náði tali af Guðmundi Reyni í dag sem sagðist ekki geta beðið eftir því að klukkan slægi 16.00 á laugardaginn. "Þetta er svona eins og aðfangadagur týpan. Það er mjög erfitt að bíða eftir því að fá að opna pakkana um kvöldið og þetta er sama tilfinningin. Ég fæ samt alltaf að stelast til að opna einn pakka, annars er ég alveg ómögulegur allan daginn." KRReykjavik.is vonar að Guðmundur Reynir Gunnarsson eigi góðan leik á laugdardaginn og setji upp þetta fallega bros í leikslok.