Gary Martin þurfti ekki að nota höndina
Mark Gary Martin í bikarúrlsitaleiknum í gær minnti að vissu leyti á markið sem Maradona skoraði með hönd guðs. Gary þurfti hins vegar ekki að notast við ólöglega aðferð til þess að skora markið, heldur dugði stökkkraftur hans og skallatækni. Gary hefur skorað fimm mörk í sex leikjum með KR og er orðinn yndi margra stuðningsmanna KR. Gary Martin reyndist KR aldeilis vel í bikarkeppninin. Gary tryggði KR sæti í bikarúrslitaleikinn með marki á móti Grindavík í undanúrslitum og jafnaði svo leikinn nánast upp úr engu í gær.